|
Post by Ofurstinn on Apr 30, 2007 17:00:31 GMT
Ég ákvað að búa strax til þræði fyrir GaGa 2 og 3 og aðskilja þannig spjallið strax í upphafi. Það eru komin 10 ár síðan farið var að pæla í að gera Gagnslaust Gaman 2 og var fyrsta handritið fyrir þá mynd skrifað árið 1998 og bar undirtitilinn "Prestakall" en einhvernvegin fannst aldrei tíminn til að ráðast í það verkefni fyrr en árið 2000, en þá var stokkið í allt annað verkefni og hafist handa við að kvikmynda "Litla Risann" sem síðan var aldrei kláruð.
Gagnslaust Gaman 2 hefur verið skrifuð fjórum sinnum í gegnum árin og stendur nú til að nýta eitthvað af þeim skrifum og gera myndina undir titlinum "Allir Með Tölu" sem, eins og svo margt annað, gæti breist áður en myndin er endanlega kláruð. Leit að leikurum og tökustöðum stendur yfir og því frá fáu að segja sem stendur, en hér verður meira skrifað þegar að tökum kemur.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Aug 26, 2008 16:59:11 GMT
Já, heldurðu að það gæti ekki farið svo að Gagnslaust Gaman 2 muni ekki heita Allir Með Tölu eins og upphaflega var ætlunin? Önnur hugmynd er að láta hana heita "Veistu Hvað?" - Hinn titillinn er betri, en "Veistu Hvað?" passar betur fyrir efnið. En endanlegur titill verður örugglega ekki ákveðinn fyrr en daginn eftir að búið er að klippa myndina. Við munum taka myndina upp nú á næstunni (einhverntíman næstu 18 mánuðina) svo þá fer allt að koma í ljós.
|
|