|
Post by Ofurstinn on Sept 28, 2007 0:46:22 GMT
"Shang Shang .... From Reykjavík" er 23 mínútna stuttmynd sem gerð var dagana 1 - 3 september 2007. Vinnan við myndina hófst um kl. 18:00 laugardaginn 1. sept. og lauk klippingu myndarinnar um kl. 06:00 mánudaginn 3. sept. Í myndinni er að finna upptökur frá Bíó Reykjavík hátíðum, ásamt upptökum sem gerðar voru sérstaklega fyrir myndina 1. og 2. sept. Einnig eru 2 brot úr Gagnslaust Gaman í þessari mynd (sem by the way var vel hlegið að þrátt fyrir að annað atriðið var textalaust - enda ekki mikill dialog í því atriði) og sömuleiðis litla tilraunin sem ég og félagarnir gerðum árið 1991, og er þetta í fyrsta sinn sem einhver utan náins vinahóps fær að sjá þessa 20 sekúntna mynd. Sem Sagt, Shang Shang .... From Reykjavík er heimildarmynd á léttum nótum og upphitun fyrir heimildarmynd í fullri lengd, sem er á dagskrá að gera og ber titilinn "Groundswell: The Bíó Reykjavík Saga" Shang Shang .... From Reykjavík var sérstaklega gerð fyrir Giovanni Sampogna, aka MC Shanger, og hefur nú þegar verið sýnd fjórum sinnum í Shang-O-Rama í Toronto, sem er (fyrir þá sem ekki vita) lítið art Cinema í Toronto og fékk hún fínar viðtökur þar. Fyrir þá sem vilja kynna sér Shang-O-Rama endilega kíkið á heimasíðuna shangorama.com.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Oct 6, 2007 17:27:06 GMT
Viðtökurnar sem Shang Shang .... From Reykjavík fékk í Toronto voru góðar. Þegar myndin var sýnd í fjórða sinn heyrðist úr salnum, frá aðila sem hafði séð myndina á fyrri sýningu (þegar atriðið með hænuna og eggið úr Gagnslaust Gaman kom og Oddur Bjarni labbaði inní leiguna) "That's the Icelandic Mr. Bean"
Ég veit ekki hvað Oddi finnst um Mr. Bean en mér fannst þetta ansi skondið comment.
Annað sem nokkrir sögðu við mig var "You should do more comedies" og það er jú stefnan hjá mér því Gagnslausu Gamanmyndirnar munu verða a.m.k. 3 og svo er Risa Þrennan, aðrar þrjár gamanmyndir sem byggja á handritunum "Á Öndinni" og "Litli Risinn" en myndirnar þrjár munu heita: #1 "Með Hjartað í Buxunum" #2 "Á Öndinni" og #3 "Litli Risinn" Æskilegt er að taka þessar myndir Back to Back og er það stefnan.
Myndatökunni var hælt af vel metnum kvikmyndatökumanni "Some very good shots" (Hey, Some er betra en ekki neitt og fyrir mig sem er Ed Wood Íslands er Some meira en hægt var að búast við því enginn gerir slæma hluti eins vel og ég) og var tónlistinni hælt af mörgum líka "Great Soundtrack" en það hól eiga þeir Gummi Svafars og bibbi, enda eðal tónlistamenn báðir tveir.
Einnig fékk maður hól frá nokkrum fyrir klippingu myndarinnar en athugasemd um að vinna hljóðið betur og það skal gert.
Þar hafiði það, over all bara nokkuð góðar viðtökur og myndinni mikið hælt.
Þegar endur klippingu á Gagnslaust Gaman er lokið mun ég hugsanlega senda hana út, eða jafnvel fara með hana sjálfur, svo hún geti verið sýnd í heild sinni. En Shang Shang .... From Dee T-Dot mun að sjálfsögðu verða send út og sömuleiðis Gagnslaust Gaman 2 og 3 ... eina spursmálið er hvort ég láti fyrstu Gagnslaust Gaman fara líka. en ég er búinn að lofa því að hinar muni fara til sýningar í Shang-O-Rama og mun ég standa við það, ásamt því að senda allar aðrar myndir sem ég geri héðan í frá.
|
|