Post by Ofurstinn on Oct 5, 2007 17:04:12 GMT
Endurklipping á Gagnslaust Gaman hefur staðið yfir í þó nokkurn tíma og er langt á veg komin. Einnig er hugmyndin að taka upp eitt af atriðunum sem voru plönuð á sínum tíma og bæta því inn í myndina, ásamt nokkrum öðrum atriðum sem voru tekin upp, en ekki notuð þegar myndin var fyrst klippt. Margar ástæður voru fyrir því að sumar tökur voru ekki notaðar (og jafnvel heilu atriðin) en megin ástæðan fyrir flest þeirra var sú að með þessum tækjum sem við höfðum á þessum tíma var bara of flókið að klippa sum atriðin eins og þau áttu að vera klippt, og önnur atriði komust ekki inn í myndina sökum þess að uppbyggingin fyrir þau var aldrei tekin upp.
Flest þeirra atriða sem vantar (þ.e.a.s. atriðin sem ekki voru tekin upp) mun ekki vera hægt að taka upp fyrir þessa nýju útgáfu. Einu atriði er pottþétt hægt að redda og er það kvikmyndin sem Jói og bibbi horfa á brot úr í bakherberginu, en á sínum tíma var bara hent inn öðru atriði þar, sem átti að vera annarstaðar í myndinni, og er ég að dunda mér í því að sjá hvað hægt er að gera með tölvunni að redda því sem átti að byggja upp fyrir það atriði því bibbi hefur stækkað of mikið til að hægt sé að taka upp nú það sem þarf. En kvikmyndin sem Jói varð svo snortinn af að sjá brot úr var aldrei tekin upp og er stefnan að kippa því í lag núna, ef ekki finnst neitt annað nothæft af tökunum úr Á Öndinni.
Atriðið sem átti að koma á eftir því þegar Oddur finnur peninginn í vasa sínum fyrir utan Hlöðufell væri hægt að taka upp EF Oddur hefði áhugann og ef hægt væri að hafa uppá eins fötum og hann var í á þessum tíma (eða ef hann ætti þau sömu enn í dag) Ég er samt ekki að leggja neina áherslu á það þessa dagana, heldur er ég fyrst og fremst að sjá hvað ég get gert með það efni sem til er og ef eitthvað sé nothæft af upptökunum frá hinni myndinni (þ.e.a.s. Á Öndinni)
Stefnan er að koma Gagnslaust Gaman eins nálagt þeirri mynd sem maður sá fyrir sér að hún ætti að verða á sínum tíma, en of mörg atriði er nánast vonlaust að taka upp nema hreinlega að gera myndina alla aftur og það mun ég ekki gera (ætla þó að gera það með "Á Öndinni" enda var hún aldrei kláruð) en ég á þau atriði til góða og hluta af þeim nýti ég í Gagnslaust Gaman 2 og 3 sem sennilega verða báðar tilbúnar 2008 ... í sitthvorum enda ársins þó og miðað við að allt gangi að óskum.