|
Post by Ofurstinn on Apr 29, 2007 22:49:15 GMT
Eins og allir vita, sem hingað eru komnir, eru áform um að vera með sýningu á Gagnslaust Gaman í tilefni þess að nú eru 10 ár liðin síðan myndin var kláruð og fyrst sýnd. Einnig bendir allt til þess að loksins verði ráðist í að kvikmynda Gagnslaust Gaman 2, en fyrsta handritið af þeirri mynd var skrifað árið 1998 og bar undirtitilinn " Prestakall" Nýja myndin ber ekki lengur þann titil enda efni myndarinnar ekki lengur trú og trúarbrögð heldur mun víðara umfjöllunarefni og undirtitill myndarinnar er nú " Allir Með Tölu" Þriðja myndin í seríunni verður sú fyrsta í seríunni sem sennilega mun byggja á einhverju sem líkist alvöru handriti og glímir við þungt viðfangsefni, eða þróun mannkynsins. Undirtitill þeirrar myndar er " Brátt í Brók" og er stefnt á að taka hana upp samhliða Ga Ga 2. Nú leggjast allir á eitt að breiða út boðskapinn: " Gagnslaust Gaman er að koma aftur," því sýningin verður ekki auglýst neinstaðar nema hér á vefnum og því um að gera að senda alla inn á þessa heimasíðu sem kunna að hafa áhuga á að sjá myndina og tala bara nógu mikið um þetta, þá náum við kanski að sjá flest þeirra sem tóku þátt í verkinu á þessari sögulegu sýningu. Ég mun svo senda öllum skráðum meðlimum á þessu skilaboða-borði e-mail þegar dagsetning, staðsetning og tímasetning er komin, en á hátíðina eru að sjálfsögðu allir velkomnir. Nú er bara að byrja að tala við sem flesta.
|
|
|
Post by Ofurstinn on May 1, 2007 13:14:03 GMT
Hér skal nú aðeins sagt frá hugmyndinni hvernig þessi hátíð skal vera upp byggð. Eins og staðan er nú í dag stendur leit yfir að viðeigandi húsnæði þar sem hægt er að sýna myndina og hafa góðann tíma fyrir og eftir sýningu fyrir gesti til að spjalla saman, drekka, fara í mækinn og segja eitthvað sniðugt sem öllum finnst fyndið eða einhverjum öðrum finnst fyndið. Spruningin er hversu stórann sal þarf .... er nóg að hafa bara pláss fyrir 30 manns eða þarf að vera pláss fyrir 31? Nokkrir staðir hafa verið nefndir og er þar pláss fyrir 30 manns, 50 manns, 120 manns og svo einn sem tekur í kringum 250 manns, en það er líklega óþarflega stórt og býður ekki uppá það frelsi sem þarf fyrir þessa hátíð. Kostnaðar hliðin er svo altaf atriði sem þarf að hugsa um líka, ekki viljum við rukka inn á sýninguna því þangað eiga allir að vera velkomnir svo hátíðin verður að kosta sem minnst þó vissulega væri hægt að setja upp söfnunarbauk í salnum þar sem fólk getur losað sig við klinkið til að ná upp í húsaleiguna. Ef allir settu 10 krónur í baukinn þá mundum við ná allavega heilum 100 krónum og er það nánast hálfur bjór. Þessi mál er verið að skoða en frítt skal vera inná hátíðina. Á undan myndinni verður sýnd u.þ.b. 20 mínútna samatekt af upptökum frá Cult tímabilinu og því fylgt eftir með sýningu á afmælismyndinni sjálfri. Nefnt hefur verið við mig að klippa saman meira af upptökum frá Cult tímabilinu til að sýna eftir myndina ef einhverjir vildu sjá meira. Þetta ætla ég að reyna að gera til að hafa auka efni handa þeim sem kunna að vilja sjá meira. Sennilegt er að mæk verði á staðnum fyrir þá sem hugsanlega hafa eitthvað að segja fyrir og eftir sýningu svo, þó að myndin sé aðeins 87 mínútur, má alveg búast við því að hátíðin verði 3-5+ klukkustundir. Költarar voru jú þekktir fyrir það að halda áfram svo lengi sem stemning var á staðnum og engin ástæða til að ætla að það hafi breist mjög mikið. Staðan er sem sagt sú í dag að verið er að melta hvort fara á í kósý 30 manna stað eða uppí 120 manna stað. Ókosturinn við stærra húsnæðið er að ef fáir mæta þá er óvíst hvort nokkrir ná að hittast en í litla húsnæðinu komast menn ekki hjá því, í litla salnum verður vandamál ef margir mæta því þá verða allir uppá öllum. Svo það er um margt að hugsa þessa dagana og þarf maður að meta hversu mikill raunverulegur áhugi er á að mæta á þessa hátíð því við viljum að allir komist að sem vilja. Önnur leið er svo að setja upp einhverskonar bókunarkerfi þannig að þeir sem ætla að mæta verða að panta sér sæti tímanlega. Hvernig svo sem þetta verður þá mun endanleg niðurstaða verða komin innan fárra daga um hvernig að þessu öllu skal staðið og dagsetning ákveðin þegar Gummi Svafars kemur aftur til landsins, því öllum hátíðum er heiður af þátttöku höfðingja á borð við hann. En þar hafið þið það, þetta er staðan í málinu eins og er, við erum að taka púlsinn til að meta áhuga og förum við þá eftir "First time visitor" teljaranum á heimasíðunni og þeim viðbrögðum sem verður að finna hérna á spjallsíðunni. Svo áhugasamir láti heyra í sér, en ef þú hefur engann áhuga haltu þá bara kjafti
|
|
bibbi
New Member
Posts: 2
|
Post by bibbi on May 4, 2007 9:36:44 GMT
Ég mæti og ég ætla að vera fullur... mjög!
|
|
|
Post by heiddi on May 8, 2007 20:32:32 GMT
Gaman verður að hitta gott fólk, ég mæti.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Jun 17, 2007 0:42:46 GMT
Sökum mikillar vinnu síðastliðinn mánuð hefur þurft að seinka 10 ára afmælissýninugnni á Gagnslaust Gaman en nú eru aðeins 10 dagar eftir af þessari vinnutörn og fer þá að vera hægt að skella þessari stórhátíð í gang. Einnig eru tökur á Gagnslaust Gaman 2 hafnar en fara þó ekki á fullt fyrr en í seinni part júlí, enn og aftur sökum mikillar vinnu hjá þátttakendum.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Aug 29, 2007 12:11:17 GMT
Þar sem ritari þess texta sem þér eruð að lesa þessa stundina mun verða í Kanada næstu þrjár vikurnar - þar sem meðal annars er stefnan að taka upp atriði í Gagnslaust Gaman 2 - mun verða enn meiri seinkun á afmælissýningunni á Orginal meistaraverkinu. Vinnan við endurklippingu myndarinnar er á lokastigi svo hugsanlega verður jafnvel hægt að sýna nýju endurklipptu útgáfuna í stað þeirrar gömlu.
Heimildarmyndin Költarar er líka komin vel á leið og er farið að líta út fyrir að hún geti verið sýnd í lok ársins. Allt er á góðu róli, fyrir utan seinkunina á afmælishátíðinni en endar eru að ná saman og þetta fer því allt að skella á.
Þrátt fyrir að reiknað hafi verið með að Gagnslaust Gaman 2 verði ekki tilbúin til sýningar fyrr en í allra fyrsta lagi undir lok 2008 þá er gangurinn búinn að vera það góður að það má jafnvel búast við henni fljótlega uppúr áramótum. Hver veit, kanski verður 10 ára afmælishátíðin eina vikuna, Költarar þá næstu og Gagnslaust Gaman 2 þá þriðju ... það yrði að sjálfsögðu bara gaman og hörku þriggja vikna afmælishátíð, en ég mun vita meira eftir að ég kem aftur til baka frá South Park ... uhh ... Kanada meina ég.
|
|
|
Post by das gums on Oct 12, 2007 9:29:28 GMT
Hvað segiru gamli Er eitthvað að frétta af þessu?
|
|
|
Post by Ofurstinn on Oct 12, 2007 18:07:15 GMT
Ég er búinn að finna nothæft VHS eintak af Gagnslaust Gaman sem hægt er að nota í sýninguna. Masterinn er ónothæfur og ég er ekki kominn nógu langt með endurklippinguna til að geta notað nýtt eintak, aldurinn á teipinu er farinn að segja til sín sumstaðar svo það er svolítil vinna við það að laga allt í tölvunni en ég held að ég muni ná sæmilegu eintaki úr tölvunni til að varðveita myndina áfram. Það var ekki seinna vænna að byrja að endurklippa verkið.
Það eina sem vantar núna er að finna stað þar sem hægt er að sýna myndina og við getum verið með sæmilegasta partý í kringum sýninguna. Staðirnir sem ég hef fundið bjóða ekki uppá að við getum verið með partý í kringum sýninguna svo ég hef verið að litast um eftir plássi sem hægt er að leigja og sömuleiðis að redda sýningartjaldi og skjávarpa. Ég er að vona að ég finni húsnæði fyrir mánaðarmót svo hægt sé að vera með sýninguna í byrjun Nóvember. Mér sýnist á öllu að 30 manns í sæti ætti að duga svo það þarf ekki stórt húsnæði fyrir þetta. Þetta verður líklegast bara kjarninn á bak við myndina sjálfa sem ætlar að mæta svo þetta verður lítill en mjög góður hópur.
Ég læt vita þegar ég hef fundið húsnæði sem gæti hentað fyrir þessa sýningu en ef ekkert gengur í að finna almennilegt partý pláss þá er ég með annann stað í huga og mun ég tala við eigendur þess staðar nú um helgina svo sýningin geti orðið fyrstu helgina í Nóvember. Biðin er búin að vera löng og kominn tími til að halda þessa hátíð.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Jan 24, 2008 17:07:06 GMT
Já, þó að sæmilegasta eintak af myndinni sé fundið og allt tilbúið að því leiti hefur ekki fundist tími til að hafa uppá, og bóka, stað til að sýna myndina. Mikið er að gera í undirbúningnum á "Shangin' Rock Cafe" og í tökum og upplýsingaleit fyrir "Péturs Sögu" svo áður en ég vissi af var orðið of stuttur fyrirvari til að finna húsnæði fyrir sýninguna sem átti að vera 25. Janúar. Stefnan er nú á 8. Febrúar og ef það gengur ekki upp þá verður sennilega að hætta við 10 ára afmælissýningu og vera með 11 ára afmælissýningu í staðin. En ef einhver hefur hugmyndir um góðan stað til að halda þessa sýningu þá megið þið endilega láta mig vita ... það gæti flýtt verulega fyrir þessu öllu saman.
|
|