|
Post by Ofurstinn on Jan 12, 2008 14:49:55 GMT
Já, þar sem nú er stefnan að setja í gang nokkur verkefni er stefnan að endursetja upp Cult Leikhópinn. Þar sem það eru komin nokkur ár síðan við vorum með starfandi leikhóp byrjum við skráninguna á núlli og allir eldri leikfélagar sem vilja koma inn aftur geta sent okkur e-mail ( leikarar@ragnarokfilms.com ) eða bara skráð sig inn hér og setja inn svar við þessum þráð og látið okkur vita að þau vilji vera memm og það sama gildir um alla nýja áhugasama leikara ... já og aðra sem hafa bara áhuga á að vinna að þessum verkefnum með okkur. Stefnan er núna að byggja annan sterkann samheldann hóp og í þetta sinn verða ekki langar pásur á milli verkefna, því nokkur handrit eru til og hugmyndir að fjölda annara svo nú er bara að koma saman og fara að gera eitthvað skemtilegt og skemta okkur sjálfum og öðrum. Hlakka til að heyra frá sem flestum ykkar aftur og að heyra frá sem flestum í fyrsta skipti.
|
|
|
Post by Ofurstinn on Jan 25, 2008 19:00:25 GMT
Svona fyrir alla nýja sem ekki vita útá hvað þetta allt gengur þá er stefnan að ná fólki saman og gera kvikmyndir af ýmsu tagi, en eins og stendur er það að megninu til gamanmyndir. Stefnan er að endurvekja Bíó Reykjavík í leiðinni og vera með sýningar á myndum (bæði stuttmyndum og myndum í fullri lengd) sem flokkast undir underground myndir .. þ.e.a.s. myndir gerðar af alvöru áhugafólki. Stefnan er að finna húsnæði sem verður samkomustaður okkar og helst líka sýningaraðstaðan okkar. Eins og Bíó Reykjavík sýndi á sínum tíma er mikið af hæfileikaríku fólki hér á landi og er tíminn kominn til að koma öllu þessu fólki saman og sjá hversu mikið af góðu efni verður til úr því.
|
|