|
Post by Ofurstinn on Apr 29, 2007 22:25:20 GMT
Velkomin á þessa litlu spjallsíðu okkar í Ragnarök Films. Hér er öllum velkomið að spjalla um allt sem tengist Kvikmyndum, Kvikmyndagerð, áformum okkar í Ragnarök Films og já, bara það sem fólki dettur í hug - aldrei að vita hvað sett verður hérna inn í framtíðinni. Sér þræðir hafa verið settir upp fyrir GaGa myndirnar og Cult en sögur frá Cult tímabilinu eru sérstaklega velkomnar svo verið ófeimin við að tjá ykkur. Fleiri þræðir koma svo upp í framtíðinni og þar á meðal þræðir fyrir allar planaðar myndir þegar styttast fer í að tökur hefjist á þeim.
Skráðir meðlimir, sem valið hafa opt-in í tölvupóst sendingar, fá send skilaboð þegar einhver gjörningur er í gangi, eins og til dæmis hin væntanlega afmælishátíð Gagnslaust Gaman. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir hingað inn svo endilega skráði ykkur og látið eins og heima hjá ykkur, nema ekki pissa í vaskinn, takk fyrir.
|
|